Nasaret
(Endurbeint frá An-Nāṣira)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/52/Nazareth_%281%291.jpg/220px-Nazareth_%281%291.jpg)
Nasaret (hebreska נָצְרַת Natzrat eða Natzeret; arabíska اَلنَّاصِرَة an-Nāṣira eða an-Naseriyye) er stærsta borgin í Norðurumdæmi Ísraels og þekkt sem „arabísk höfuðborg Ísraels“ þar sem meirihluti íbúa eru arabar, þar af um 70% múslimar og um 30% kristnir. Íbúar eru rúmlega 80.000 talsins. Í Nýja testamentinu er Nasaret lýst sem heimabæ Jesú og því er borgin vinsæll viðkomustaður kristinna pílagríma.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Nasaret.