Veiðimaðurinn
(Endurbeint frá Veiðimaðurinn (stjörnumerki))
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/ff/Orion_IAU.svg/220px-Orion_IAU.svg.png)
Veiðimaðurinn, Risinn eða Óríon er stjörnumerki við miðbaug himins. Björtustu stjörnur þess eru Rígel og Betelgás. Í Veiðimanninum eru Fjósakonurnar, það eru þrjár stjörnur (Alnilam, Alnitak og Mintaka) sem liggja í beinni línu og mynda belti hans. Í sverði hans er Sverðþokan.