Djúprista
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/Ship_length_measurements.png/220px-Ship_length_measurements.png)
Djúprista skips er dýpt frá vatnslínu að kili. Djúpristan er þannig minnsta dýpt sem skip getur siglt í án þess taka niðri. Djúpristumerki á stefni skips sýna hversu djúpt það ristir. Út frá þeim er hægt að finna út þyngd farms með því að reikna út hversu miklu skipið ryður frá sér. Hleðslumerki á skrokknum sýna hversu djúpt skipið má rista án þess að eiga á hættu að sökkva vegna ofhleðslu.