Emily Dickinson
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/56/Black-white_photograph_of_Emily_Dickinson2.png/300px-Black-white_photograph_of_Emily_Dickinson2.png)
Emily Dickinson (10. desember 1830 – 15. maí 1886) var bandarískt ljóðskáld. Þótt hún hafi verið nær óþekkt meðan hún lifði hefur hún síðan verið talin með bestu skáldum Bandaríkjanna á 19. öld. Þekkt eru 1789 ljóð sem hún skrifaði, en einungis örfá þeirra voru gefin út meðan hún lifði.
Nokkur ljóða Emily Dickinson hafa komið út á íslensku í þýðingu Hallbergs Hallmundarsonar í tveimur ritum 1991 og 1994.