Regnbogi
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/5c/Double-alaskan-rainbow.jpg/300px-Double-alaskan-rainbow.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8e/Rainbow_formation.png/250px-Rainbow_formation.png)
Regnbogi (einnig kallaður friðarbogi) er ljósfræðilegt og veðurfræðilegt fyrirbæri sem orsakast þegar litróf birtist á himninum á meðan sólin skín á vætu í andrúmslofti jarðar. Hann er marglitur með rauðan að utanverðu og fjólubláan að innanverðu. Sjaldnar má sjá daufari regnboga með litina í öfugri röð.
Á Íslandi sjást regnbogar oft við fossa.
Ýmsar tegundir regnboga[breyta | breyta frumkóða]
- Bifröst, sem í norrænni goðafræði er brú ása af jörðu til himins, er einnig annað nafn á regnboga.
- haggall er regnbogastúfur á hafi
- hrímbogi er regnbogi í éljagangi og lágum lofthita.
- jarðbogi er regnbogi sem nær báðum endum til jarðar.
- njólubaugur er regnbogi sem sést að nóttu til.
- regnband er bútur af regnboga.
- úðabogi er regnbogi í þoku eða yfir fossi.
- þokubogi (oft nefnfur hvítur regnbogi) er hvítur regnbogi sem myndast af litlu endurkasti í örsmáum úðadropum, þannig að litirnir blandast aftur.
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Rainbow.