Stokkseyrarhreppur
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/16/Stokkseyrarhreppur_kort.png/220px-Stokkseyrarhreppur_kort.png)
Stokkseyrarhreppur var hreppur suðvestan til í Flóa í Árnessýslu, kenndur við bæinn Stokkseyri.
Á seinni hluta 19. aldar fór fólki að fjölga mikið í hreppnum, aðallega vegna aukinnar útgerðar og verslunar, bæði á Stokkseyri og á Eyrarbakka. 1897 var vegna þessa ákveðið að skipta hreppnum í tvennt og var landshöfðingjabréf gefið út um skiptinguna hinn 18. maí. Hélt eystri hlutinn nafninu óbreyttu en sá vestri var nefndur Eyrarbakkahreppur.
Hinn 7. júní 1998 sameinuðust hrepparnir tveir á ný og Sandvíkurhreppur og Selfossbær að auki undir merkjum sveitarfélagsins Árborgar.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)