Thomas Henry Huxley
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/2/2e/T.H.Huxley%28Woodburytype%29.jpg)
Thomas Henry Huxley (4. maí 1825 – 29. júní 1895) var enskur líffræðingur. Hann var kallaður „bolabítur Darwins“ vegna varnar sinnar fyrir þróunarkenningar Charles Darwin.
Árið 1860 átti Huxley í frægum rökræðum við Samuel Wilberforce, biskup í Oxford, um þróunarkenninguna. Rökræðurnar voru mikilvægur þáttur í útbreiðslu þróunarkenningarinnar.