Wandel-haf
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/82/Wandel_Sea_map.png/220px-Wandel_Sea_map.png)
Wandel-haf er hafsvæði í Norður-Íshafi sem nær frá norðausturodda Grænlands að Svalbarða. Höfin sem liggja norðan og norðvestan við Wandel-haf eru ísi lögð árið um kring. Wandel-haf nær vestur að Morris Jesup-höfða og að Nordostrundingen í suðri. Lengra í vestri er Lincolnhaf og í suðri tengist hafið Grænlandshafi um Framsund.
Hafið heitir eftir danska landkönnuðinum Carl Frederik Wandel sem kannaði það seint á 19. öld.