Wikipedia:Vissir þú...
- … að Võ Nguyên Giáp, helsti hershöfðingi Víetnams í Víetnamstríðinu, lifði til ársins 2013 og varð 102 ára?
- … að Svetlana Allílújeva, dóttir Jósefs Stalín, yfirgaf Sovétríkin á sjöunda áratugnum og gerðist bandarískur ríkisborgari?
- … að titill vísindaskáldsögunnar Dune var þýddur sem Dúna á íslensku vegna þess að þýðendurnir vildu forðast að nota orð sem vísuðu í vatn eða snjó?
- … að forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1824 voru annað og síðasta skiptið sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings varð að kjósa forsetann þar sem enginn frambjóðandi hlaut meirihluta kjörmanna í sjálfum kosningunum?
- … að Julian Lennon, sonur Johns Lennon, var innblástur fyrir þrjú lög Bítlanna: „Lucy in the Sky with Diamonds“, „Hey Jude“, og „Good Night“?
- … að teiknimyndapersónan Bósi Ljósár (sjá mynd) var nefnd eftir geimfaranum Buzz Aldrin, öðrum manninum til að stíga fæti á tunglið?